Fréttir

Myndir af íslam: Viđbrögđ og vandi

Pétur Björgvin, apríl 2010
Pétur Björgvin, apríl 2010
Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni í Glerárkirkju og Evrópufræðingur MA heldur erindi á málstofunni ,,Fjölmenning og samfélag" á ráðstefnu í þjóðfélagsfræðum 2010 í Háskólanum á Bifröst.

Erindið sem nefnist ,,Myndir af íslam: Viðbrögð, vandi og viðleitni" er stutt samantekt á ritrýndri grein sem mun birtast í júníhefti Glímunnar. Í kynningu um erindi Péturs segir:

Múslimar hafa búið við Eystrasalt, á Balkanskaganum, Íberíuskaganum, Kýpur og Sikiley í aldaraðir. Stærsti hluti þeirra múslima sem nú búa í aðildarríkjum ESB eru fjölskyldur þeirra sem komu sem farandverkamenn upp úr 1960. Flestir múslimar sem búa í ESB eru sunní-múslimar, en einnig má nefna shía-múslima, alevíta, ahmadiyya og súfa. Fjöldi þeirra er áætlaður á bilinu 13 - 20 milljónir. Í erindinu verður þau viðhorf sem sjáanleg eru í samfélaginu í garð múslima skoðuð. Horft verður meðal annars til Þýskalands þar sem evangelíska kirkjan hefur með nýlegu stefnuskjali sínu lagt til að hlutverk hins þvertrúarlega samtals milli kristinna og múslima verði að móta framtíðina í sameiningu og þora að taka á ágreiningsmálum.

Nánar upplýsingar má finna á vef Bifrastar.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning