Ferilskrá
Pétur Björgvin
Þorsteinsson,
djákni í Glerárkirkju og Evrópufræðingur (MA).
Fögrusíðu 11 A 603 Akureyri
- deacon in the evang.Lutheran church Glerarkirkja, Akureyri, Iceland and a MA in European Studies, Bifröst University.)
Pétur Björgvin Þorsteinsson er fæddur á Dalvík 7. febrúar 1967. Stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri. Lauk námi frá Karlshöhe í Ludwigsburg, Þýskalandi 1996 af námsbraut í djáknafræðum og trúaruppeldi (Diakonie und Religionspädagogik) 1996. Lauk síðara embættisprófi djákna í Württembergísku kirkjunni 1999. Útskrifaðist með M.A. gráðu í Evrópufræðum frá félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst 7. febrúar 2009.
Starfaði sem æskulýðsfulltrúi kirkjunnar í prófastsdæminu Vaihingen / Enz 1996-2000, sem fræðslufulltrúi og síðar
framkvæmdastjóri við Háteigskirkju 2000-2004. Djákni í Glerárkirkju frá 1. janúar 2005.
Pétur Björgvin hefur verið virkur leiðtogi í kirkjulegu æskulýðsstarfi frá haustinu 1983. Haustið 2005 lauk hann námskeiði fyrir
þjálfara innan styrktaráætlunar Evrópusambandsins sem nefnist ,,Evrópa Unga Fólksins". Sem EUF-þjálfari kemur
Pétur Björgvin að innlendum og samevrópskum æskulýðsverkefnum.
Menntun:
1987: Stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri
1989: Lokapróf Tollskóla ríkisins
1991 (desember) – 1992 (maí): Starfsþjálfun í æskulýðsstarfi hjá EJW, Suður Þýskalandi
1994: Lokapróf grunnnáms til djákna á Karlshöhe, Ludwigsburg (staatlich anerkannter Erzieher)
1996: Embættispróf djákna á trúaruppeldisfræðisviði (I. Dienstprüfung). Karlshöhe, Ludwigsburg
1997: Vígsla* til djákna, 13. júlí 1997 á Karlshöhe, Ludwigsburg
1999: Lokapróf starfstengds náms djákna í æskulýðsstarfi (II. Dienstprüfung). Karlshöhe, Ludwigsb.
2005: Lok 24 daga námskeiðs ,,Training of Trainers for European Youth Projects”**
2009: (7. febrúar) MA gráða í Evrópufræðum frá Háskólanum á Bifröst.
Starfsferill:
1986-1987: Aðstoðar æskulýðsfulltrúi Æskulýðsstarfs þjóðkirkjunnar með aðsetur á Akureyri.
1987-1988: Starfsmaður í gestamóttöku á gistiheimili Hjálpræðishersins á Íslandi
1988-1991: Tollvörður hjá Tollstjóranum í Reykjavík
1991 (september út nóvember): Stjórn fermingarnámskeiða í Skálholti og aðstoðarmaður rektors
1996-2000: Æskulýðsfulltrúi prófastdæmisins Vaihingen / Enz í Suður Þýskalandi
2000-2004: Fræðslufulltrúi / framkvæmdastjóri Háteigskirkju, Reykjavík
2005-… : Djákni við Glerárkirkju, Akureyri. (Námsleyfi frá 1. janúar 2008 til 1. júní 2008)
Útgefið efni:
1985: Ritstjóri afmælisblaðs sumarbúðanna við Ástjörn
1986 -1989: Ýmis efnisútgáfa fyrir Æskulýðsstarf þjóðkirkjunnar / Fræðsludeild þjóðkirkjunnar
1996-2000: Sæti í ritstjórn ,,Jungscharleiter” sem kemur út fjórum sinnum á ári í 12.000 eintökum og hefur að geyma
leiðbeiningar og kennsluefni fyrir kirkjulegt tómstundastarf með níu til þrettán ára börnum.
1996-2000: Lausamaður við Vaihinger Kreiszeitung – skrif um æskulýðsmál
2000-2004: Ritstjórn og ábyrgð á ,,Háteigskirkjutíðindum”, safnaðarblaði Háteigskirkju
2006: 33 leikir til notkunar í Sunnudagaskóla. Útg: Skálholtsútgáfan.
2006-2007: Meðhöfundur að samtals fjórum flettimyndabiblíum til notkunar í Sunnudagaskóla. Útg: Skálholtsútgáfan.
2009: Handbók Farskóla leiðtogaefna. Útg.: Skálholtsútgáfan.
2009: Samtal við framandi ... Útg.: Lífsmótun.
2010: Ást fyrir lífið. Útg: Tindur. Þýðandi: Pétur Björgvin Þorsteinsson.
Helstu nefndar-, félags- og trúnaðarstörf:
1982-1983: Sveitarforingi fimmtu sveitar Skátafélags Akureyrar
1985-1992: Sæti í stjórn sumarbúðanna við Ástjörn
1993-1995: Sæti í nefnd um úthlutun styrkja til efnaminni nemenda á Karlshöhe Ludwigsburg
1998-2000: Sæti í stjórn djáknasambands Karlshöhe, sambands með um 1300 meðlimi
2001-2003: Sæti í stjórn Biblíuskólans við Holtaveg
2001-2003: Sæti í starfshópi fræðslusviðs Biskupsstofu um starf með unglingum og ungmennum
2001-2009: Sæti í stjórn Fagfélags æskulýðsfulltrúa, formaður síðan í maí 2003
2003-2006: Formaður Heimasíðu- og upplýsinganefndar Djáknafélags Íslands
2004-2005: Formaður starfshóps Kirkjudaga Þjóðkirkjunnar 2005, frá júní 2004
2005-2009: Varamaður í stjórn Djáknafélags Íslands
2006-2008: Sæti í nefnd á vegum Kirkjuráðs um mat á kirkjustarfi
2005-2012: Sæti í æskulýðsráði ÆSKEY - Æskulýðssambands kirkjunnar í Eyjafjarðarprófastsdæmi
2007- …: Varamaður í jafnréttisnefnd Þjóðkirkjunnar
2009-2012: Sæti í stjórn AkureyrarAkademíunnar (Félags sjálfsstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, gjaldkeri fyrstu tvö
árin, formaður það þriðja.)
2010-...: Sæti í Skólaráði Síðuskóla
2010-2014: Varamaður á Kirkjuþingi. Kom í fyrsta (og eina) sinn inn í stað aðalmanns á kjörtímabilinu á Aukakirkjuþingi 5.
febrúar 2012.
2012: Sæti í fimm manna nefnd sem kjörin var á Aukakirkjuþingi 5. febrúar 2012 til að endurskoða reglur um biskups- og vígslubiskupakjör.
__________________________________________________________________
* Með orðinu vígsla á ég hér við ,,Berufung, Verpflichtung und Einsegnung” samkvæmt lögum evangelísku kirkjunnar í Württemberg frá 29.11.1995 og reglugerð um framkvæmd þess frá vorinu 1997.
** Í hjálögðu pdf-skjali má fræðast nánar um markmið þessa námskeiðs. Auk þess má nálgast hér á vefnum stutta skýrslu um þátttöku mína á námskeiðinu.

